Hálendisþjóðgarður - Kynningarfundur í Félagsheimilinu Breiðamýri 12. janúar

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir árform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Fundurinn er haldinn í Félagsheimilinu Breiðamýri sunnudaginn 12. janúar kl. 11:00

ATH! Um er að ræða fund sem til stóð að halda 8. janúar sl. en fresta þurfti vegna veðurs.

Frumvarpið tekur til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðs.

Á fundinum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundurinn er öllum opinn – verið velkomin.