Kvíaból hlýtur Umhverfisverðlaun Þingeyjarsveitar
Umhverfismál skipa stóran sess hjá okkur í Þingeyjarsveit, því er vel viðeigandi að veita árlega verðlaun til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr varðandi umhverfi sitt, á einhvern hátt. Umhverfisnefnd Þingeyjarsveitar auglýsti eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna og bárust nefndinni tilnefningar um sex aðila. Við þökkum þeim sem sendu inn tilnefningar því mikilvægt er fyrir nefndina að fá ábendingar um það sem vel er gert.
Eftirtaldir voru tilnefndir:
Einishús ferðaþjónusta á Einarsstöðum þar sem umhverfið er til fyrirmyndar, m.a. með manngerðri tjörn og gönguleiðum fyrir gesti.
Illugastaðir í Fnjóskadal en þar er mikill metnaður viðhafður í að hafa allt svæðið og umhverfi húsanna snyrtilegt og vel hirt.
Fagranes í Aðaldal fyrir fallegt og vel umhirt býli.
Hjördís Finnbogadóttir Nónbjargi fyrir þrotlaust sjálfboðastarf að náttúruvernd.
Klömbur í Aðaldal fyrir snyrtimennsku og endurgerð fyrstu steyptu heimreiðar á Íslandi, brúsapalli og hliði.
Kvíaból í Köldukinn, eitt af snyrtilegustu býlum í sveitarfélaginu.
Umhverfisnefnd var mikill vandi á höndum við valið en niðurstaða nefndarinnar var að veita ábúendum á Kvíabóli í Köldukinn umhverfisverðlaun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2024. Í umsögn með tilnefningunni segir: Kvíaból í Köldukinn „er eitt af snyrtilegustu bæjarstæðum í sveitarfélaginu. Allt slegið og snyrt reglulega, gengið vel um allt á hlaðinu ekkert rusl eða neitt því um líkt fjúkandi. Tún vel græn og hugsað vel um þau. Ábúendur eru nýbyrjaðir í skógrækt í brekkum fyrir ofan bæinn og verður þetta flottur skógur eftir nokkur ár. Hugsað er vel um byggingar á jörðinni.“
Gaman er frá því að segja að þau Haukur Marteinsson og Ingiríður Hauksdóttir bændur á Kvíabóli eru ekki bara snyrtimenni heldur einnig afburða góðir bændur og nýlega var Kvíaból útnefnt fyrirmyndabú nautgripabænda árið 2025.
Við óskum Kvíabólsbændum til hamingju með fyrirmyndarbúið og Umhverfisverðlaun Þingeyjarsveitar.