Kvenfélag Reykdæla gaf Krílabæ ný leikföng
02.07.2026
Kvenfélag Reykdælinga færði leikskólanum Krílabæ dásamlega gjöf á dögunum. Félagskonurnar Jóhanna Eydís og Þórhildur afhentu leikskólanum ný og vönduð leikföng að andvirði 100.000 króna. Þessi rausnarlegi stuðningur vakti mikla lukku og gleði á meðal allra í leikskólanum.
Bæði börn og starfsfólk voru afar þakklát fyrir þennan hlýja hug og sýndan stuðning. Mikil eftirvænting ríkti á deildunum þegar gengið var frá nýju leikföngunum, enda voru allir spenntir að leika sér og prófa nýju leikföngin. Gjöfin mun vafalaust auðga leikskólastarfið og skapa margar skemmtilegar stundir.
Krílabær og Þingeyjarsveit senda Kvenfélagi Reykdæla bestu þakkir fyrir þessa fallegu gjöf sem nýtist leikskólabörnunum afar vel.
