Kveikt á jólatrénu við Kjarna

Sunnudaginn 2. desember sl. var kveikt á jólatrénu við Kjarna á Laugum líkt og gert hefur verið fyrsta sunnudag í aðventu undanfarin ár. Kvenfélag Reykdæla og Foreldrafélag Krílabæjar tóku höndum saman og skipulögðu samkomuna. Áður en kveikt var á trénu voru sungin nokkur jólalög og þá birtust nokkrir jólasveinar með smá glaðning handa yngstu kynslóðinni. Að því loknu var boðið upp á kakó og smákökur í Félagsheimilinu Breiðamýri.