Kveðja til Grindvíkinga

Fyrir hönd Þingeyjarsveitar sendir sveitarstjórn hlýjar kveðjur til íbúa Grindavíkur. Það er afar átakanlegt að fylgjast með þeim atburðum sem nú eiga sér stað og sjá enn og aftur hversu lítils við megum okkar gagnvart náttúrunni.

Hugur okkar allra er hjá íbúum Grindavíkur, styrkur ykkar er aðdáunarverður.

Með von um að yfirstandandi hörmungum ljúki fljótt sendum við ykkur og öllum viðbragðsaðilum okkar sterkustu strauma og hlýjustu kveðjur.