KOMDU ÞÍNU HEITI Á FRAMFÆRI!

Hugmyndasöfnun fyrir val á heiti á sameinað sveitarfélag er hafin. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íbúar ses sem sérhæfir sig í rafrænum samráðskerfum og rekur BetraÍsland.is

Hugmyndasöfnunin er hafin á BetraÍsland.is Hún er öllum opin til 3. febrúar.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is eða, eða með nafni og netfangi. Þeir sem það gera fá tilkynningar um breytingar og athugasemdir við tillögur. Það er líka hægt að taka þátt nafnlaust og án innskráningar, en þá berast ekki tilkynningar.

Æskilegt er að tillögur séu lagðar fram með stuttum skýringum. Þátttakendur geta líka lýst skoðunum sínum á einstökum tillögum.

Heiti sveitarfélaga skulu samrýmast íslenskri málfræði og málvenju samkvæmt sveitarstjórnarlögum, og falla að þeim reglum sem útlistaðar eru í lögum um örnefni og reglugerð um störf örnefnanefndar. Sjá nánar á vefsíðu Örnefnanefndar.

Hugmyndasöfnun mun einnig fara fram í skólum sveitarfélaganna. Þeir sem treysta sér ekki til að nýta rafrænar lausnir er velkomið að koma tillögum á skrifstofur sveitarfélaganna, eða fá aðstoð við að setja inn hugmyndir rafrænt.

Að lokinni hugmyndasöfnun verður farið yfir allar framkomnar tillögur. Undirbúningsstjórnin velur 5-10 hugmyndir sem sendar verða Örnefnanefnd til umsagnar. Örnefnanefnd skilar rökstuddu áliti sínu innan þriggja vikna frá því að erindi berst nefndinni.

Áætlað er að í mars fari fram rafræn skoðanakönnun á BetraÍsland.is sem verði leiðbeinandi fyrir nýja sveitarstjórn sem tekur endanlega ákvörðun samkvæmt lögum. Íbúum sveitarfélaganna verður boðið að taka þátt í skoðanakönnuninni með rafrænum skilríkjum.