Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí 2018

Kjörskrá fyrir Þingeyjarsveit vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí 2018 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 16. maí 2018 til kjördags.

Skrifstofa Þingeyjarsveitar í Kjarna er opin virka daga frá kl. 9:00 til 15:00.

Athygli er vakin á því að sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra mun ekki bjóða upp á atkvæðagreiðslu utangjörfundar í Þingeyjarsveit vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí 2018.

Hægt er að kjósa utankjörfundar á skrifstofu sýslumanns um land allt, m.a. á Akureyri og Húsavík.

Skrifstofa sýslumanns á Akureyri, Hafnarstræti 107 er opin virka daga frá kl. 9:00 til 18:30

Skrifstofa sýslumanns á Húsavík, Útgarði 1, er opin virka daga frá kl. 9:00 til 15:00

Auka opnun á báðum stöðum:

Laugardaginn 19. maí frá kl. 14:00 til 17:00

Mánudaginn 21. maí, annar í hvítasunnu, frá kl. 14:00 til 17:00

Sveitarstjóri