Kjörskrá vegna sameiningarkosninga 5. júní

Kjörskrá, vegna sameiningarkosninga þann 5. júní n.k., liggur frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma. Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 12:30 föstudaginn 4. júní 2021.

Í lögum um kosningar til sveitarstjórnar nr.5/1998 segir m.a:

Sveitarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Slíka leiðréttingu má gera fram á kjördag.

Óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist þjóðskrá fyrir þann tíma er greinir í 5. gr.

Sveitarstjórn skal enn fremur fram á kjördag leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast, eftir atvikum misst, íslenskt, danskt, finnskt, norskt eða sænskt ríkisfang.

 

Einstaklingar geta athugað hvort þeir séu á kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár

https://skra.is/um-okkur/frettir/frett/2021/05/18/Sameiningakosningar-5.-juni-2021-Hvar-a-eg-ad-kjosa/

 

Sveitarstjórn