Fara í efni

Janus heilsuefling í Þingeyjarsveit - ertu með?

Þann 21. september hefst formlega hreyfiverkefni í Þingeyjarsveit fyrir 60 ára og eldri í samstarfi við Janus heilsueflingu. Verkefnið er þannig að vikulega eru tvær styrktaræfingar og ein þolþjálfunaræfingar undir stjórn og með aðstoð þjálfara. Að auki er þátttakendum boðið upp á mælingar og ýmis konar fræðsluerindi allt til þess að stuðla að því að þjálfunin verði bæði markviss og árangursrík. Æfingar verða annars vegar í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og hefjast kl. 11:00 og hins vegar verða æfingar í íþróttamiðstöðinni á Laugum þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga og hefjast kl. 07:30.
 
Hvers vegna ættir þú að skrá þig til leiks?
Þátttaka í reglubundinni hreyfingu og hollt mataræði er mikilvægur liður í farsælli öldrun, að viðhalda vöðvamassa, styrk og jafnvægi þannig að við getum búið sjálfstætt og sem lengst heimavið.
 
Hægt er að skrá sig til þátttöku inn á https://www.janusheilsuefling.is/aefingastadir. Verkefnið sjálft er til tveggja ára en hægt er að binda sig í 6-12 mánuði í senn og niðurgreiðir Þingeyjarsveit þátttökugjaldið. Þó svo að mælst sé til þess að vera með strax frá upphafi þá er hægt að koma inn í verkefnið hvenær sem er.
Allar nánari upplýsingar um verkefnið veitir Gunnhildur Hinriksdóttir gunnhildur@thingeyjarsveit.is
Getum við bætt efni þessarar síðu?