Inga Sigrún Atladóttir ráðin skólastjóri Stórutjarnaskóla
Inga Sigrún Atladóttir hefur verið ráðin til starfa sem skólastjóri Stórutjarnaskóla frá og með 1. ágúst 2025.
Inga Sigrún er grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands, með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands og M.Ed.-gráðu í stjórnun menntastofnana frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Auk þess er hún með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Hún hefur víðtæka reynslu af skólastarfi og starfaði meðal annars sem deildarstjóri við Stóru-Vogaskóla 2003 – 2011 og skólastjóri Valsársskóla/Álfaborgar árin 2013 -2020. Hún hefur jafnframt starfað sem framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Þróttar og hefur á síðustu árum sinnt fræðslu- og framkvæmdastjórastöðu hjá Leiðtogasamfélaginu ehf.
Við bjóðum Ingu Sigrúnu velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í starfi skólastjóra við Stórutjarnaskóla.