Fara í efni

Blandað starf við Reykjahlíðarskóla

Við leitum eftir karlmanni í blandað starf við Reykjahlíðarskóla sem fyrst, í allt að 60-100% blandað starf við húsvörslu, þrif, baðvörslu, gæslu og aðstoð í eldhúsi.

Um er að ræða fjölbreytt starf fyrir metnaðarfullan einstakling með góða samskiptahæfileika gagnvart börnum og unglingum í leik og starfi.

Starfsmaður í blönduðu húsvarðarstarfi er þátttakandi í uppeldisstarfi skólans.
Gerðar eru kröfur m.a um mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, snyrtimennsku, stundvísi og hreint sakavottorð
Starfsmaðurinn skal sýna nemendum skóla gott fordæmi, vera jákvæður, heilsuhraustur, traustur og samkvæmur sjálfum sér.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 17. ágúst 2026.
Laun samkvæmt kjarasamningi Framsýnar.
Hvetjum alla áhugasama til að sækja um.

Frekari upplýsingar gefur Huld Aðalbjarnardóttir skólastjóri.
Sími 848-2205

Tölvupóstur: huld@reykjahlidarskoli.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?