Húsaleigubætur – Námsmenn yngri en 18 ára athugið!

Nú  eru  skólar að byrja og þeir námsmenn, yngri en 18 ára, sem munu dvelja á heimavist eða leigja sér húsnæði í vetur eiga rétt á húsaleigubótum.  Umsóknir þurfa að berast tímanlega til skrifstofu Þingeyjarsveitar eða eigi síðar en  15. dag fyrsta greiðslumánaðar.

Til þess að hægt sé að afgreiða húsaleigubæturnar þarf sveitarfélagið jafnframt að fá frumrit af  húsaleigusamningi auk staðfestingar á námi frá viðkomandi skólaskrifstofu.

Vinsamlegast athugið að hægt er að senda inn umsókn þó svo að nauðsynleg fylgigögn vanti.  Umsóknin gildir þá frá þeim degi sem hún berst  skrifstofu sveitarfélagsins, en húsaleigubætur verða ekki afgreiddar fyrr en öll nauðsynleg gögn hafa borist.

Umsóknareyðublað má finna á www.thingeyjarsveit.is og  á skrifstofu sveitarfélagsins við Kjarna.  Nánari upplýsingar veitir Margrét í síma  464-3322 margret@thingeyjarsveit.is

 Skrifstofa Þingeyjarsveitar