Huld Aðalbjarnardóttir ráðin í stöðu skólastjóra Reykjahlíðarskóla
06.08.2025
Nýr skólastjóri Reykjahlíðarskóla
Huld Aðalbjarnardóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra Reykjahlíðarskóla. Huld er grunnskólakennari að mennt og hefur mikla og víðtæka reynslu af skólamálum, m.a. var hún skólastjóri Öxafjarðarskóla 2000-2008 og gegndi starfi fræðslu- og menningarfulltrúa Norðurþings 2008-2013. Hún starfaði einnig lengi sem skrifstofu- og fjármálastjóri Framsýnar stéttarfélags.
Við bjóðum Huld innilega velkomna til starfa og hlökkum mjög til samstarfsins.