Fara í efni

Hörður heldur áfram sem slökkviliðsstjóri

Starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Þingeyjarsveitar var auglýst til umsóknar snemma á árinu, og það gleður okkur að tilkynna að Hörður Sigurðsson hefur ákveðið að halda áfram í starfi sínu. Hann verður því áfram slökkviliðsstjóri, en hann tók við því stafi í desember 2024 og hefur sinnt því af miklum sóma. 

Hörður hefur viðamikla þekkingu á sviði brunamála, hefur lokið námi eldvarnaeftirlitsmanns og starfað sem slíkur. Hörður hefur lokið fjölmörgum námskeiðum fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, hann hefur víðtæka reynslu bæði sem slökkviliðsmaður og sem stjórnandi í atvinnuliði.

Getum við bætt efni þessarar síðu?