Fara í efni

Hjördís ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Hjördís Albertsdóttir tók við starfi sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar í september síðastliðnum, en hún var þá ráðin tímabundið til 31. ágúst 2026. Starfið var svo auglýst til umsóknar 17. apríl, og fjórar umsóknir bárust. Í bókun sveitarstjórnar frá síðasta fundi segir:

Fjórar umsóknir bárust um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrir fram skilgreind viðmið og vægi. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið.

Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Hjördísi S. Albertsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar.

Hjördís var áður skólastjóri Reykjahlíðarskóla, en hún er með B.ed. próf í grunnskólakennarafræði og hefur jafnframt lagt stund á MLM nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst. Hún hefur mikla kennslureynslu ásamt reynslu af stjórnun á hinum ýmsu sviðum skólasamfélagsins. Einnig var hún varaformaður Félags grunnskólakennara á árunum 2018-2021.

Sveitarstjórn býður Hjördísi velkomna til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

Getum við bætt efni þessarar síðu?