Fara í efni

Hitaveitu áskoranir

Einstaklega miklar áskoranir hafa verið vegna hitaveitu í Mývatnssveit undanfarið.

Fyrir síðustu helgi fór þrýstingur á heitavatnslögninni að falla hratt sunnan Reykjahlíðar. Okkar bestu menn fóru af stað að leita bilunarinnar, skiptu út dælum, hreinsuðu sigti og leituðu að skemmdum á lögninni en engin skýring fannst.

Þá var kallað eftir upplýsingum frá íbúum til að aðstoða við leit að orsökinni en það var ekki fyrr en seinnipartinn á þriðjudegi sem starfsmaður fann skemmdina, djúpt undir þjóðvegi við Gíg. Farið var samstundis í að grafa niður á lögnina og gera við hana og lauk þeirri viðgerð fyrir miðnætti sama dag. Þrýstingur var settur á lögnina en daginn eftir kom önnur skemmd í ljós nokkrum metrum austar og var strax farið í viðgerð á henni.

Við vonum að þetta leysi þrýstingsvandamálið en biðjum íbúa og notendur að láta okkur vita ef eitthvað óeðlilegt er í gangi varðandi hitaveituna.

Við minnum á bilanasímann 862 4163.

Getum við bætt efni þessarar síðu?