Heitavatnslaust fimmtudaginn 9. júní kl: 11:00 og fram eftir degi

Vegna endurnýjunar á stofnaæð við Hveravelli í Reykjahverfi verður heitavatnslaust í Reykjahverfi, Aðaldal og Kinn fimmtudaginn 9. Júní klukkan 11:00 til 16:00.

Um er að ræða stofnlögn suður af Hveravöllum þannig að lokunin er viðamikil og hefur áhrif á flest alla á þessu svæði.