Hækkun kílómetragjalds mótmælt
23.11.2026
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur mótmælt fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds á ökutæki sem lögð er til í tengslum við fjárlög ársins 2027.
Nefndin bendir á að hækkunin muni auka framleiðslu- og flutningskostnað atvinnugreina í Þingeyjarsveit og að gjaldið taki ekki tillit til ólíkra aðstæðna sveitarfélaga. Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins, byggðin dreifð og vegalengdir oft langar. Hækkunin geti því komið sérstaklega þungt niður á atvinnurekendum og íbúum sveitarfélagsins.
Ályktun nefndarinnar var samþykkt samhljóða.