Grunnskólakennari óskast í Reykjahlíðarskóla
07.05.2026
Laus er til umsóknar kennarastaða við Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit til afleysingar skólaárið 2026-2027. Um er að ræða staða umsjónarkennara inn í teymi á mið- og unglingastigi í allt að 100% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast almenna kennslu og skipulag í samstarfi og samráði við aðra kennara og skólastjórnendur
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af grunnskólakennslu og fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
- Lipurð, jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Ríkur vilji til samstarfs og teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli (C2)
- Hreint sakavottorð
Virðing, vellíðan og árangur eru einkunnarorð Reykjahlíðarskóla sem er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 41 nemanda í grunnskóla og 28 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf innan skólans, milli deilda skólans og við samfélagið. Skólastarfið einkennist af samkennslu árganga þar sem leitast er við að haga skólastarfi í sem fyllstu samræmi við þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins.
Frekari upplýsingar veitir Huld Aðalbjarnardóttir skólastjóri
Umsóknarfrestur er til 21. maí 2026