Fara í efni

Greinargerð vegna endurbóta hjá Laugafiski

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra veitti Samherja þann12. janúar 2026 áframhaldandi starfsleyfi til heitloftsþurrkunar fiskafurða á Laugum í Þingeyjarsveit. Samherji hefur nú skilað greinargerð þar sem farið er yfir þær framkvæmdir sem ráðist var í til að uppfylla skilyrðin. 

Sveitarstjórn tók greinargerðina fyrir á fundi sínum 28.maí og bókaði eftirfarandi: 

Sveitarstjórn þakkar fyrir greinargerðina og felur sviðsstjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs að fylgjast vel með þróun mála. Sveitarfélagið hefur samhliða náð miklum úrbótum í fráveitumálum á Laugum og felur sveitarstjórn sviðsstjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs að leita leiða til áframhaldandi úrbóta og kynna mögulegar úrlausnir fyrir nýrri sveitarstjórn. Miklu máli skiptir að vel takist til og óskar sveitarstjórn eftir vandaðri upplýsingagjöf frá Samherja til íbúa svæðissins varðandi framgang verkefnisins.

Hér er hægt að skoða greinargerðina í heild sinni.

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?