Gjaldskrár lækkaðar frá 1. apríl

Vegna áskorunar Sambands íslenskra sveitarfélaga um að gjaldskrár er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu hækki ekki umfram 3,5% á þessu ári voru gjaldskrárlækkanir samþykktar á fundi sveitarstjórnar þann 21. mars. Gjaldskrár sveitarfélagsins hækkuðu um 7.5% um áramót en sveitarstjórn gaf það út í janúar að hún væri reiðubúin að endurskoða og lækka gjaldskrár og styðja þannig við þjóðarsátt, sjá hér.

Bókun sveitarstjórnar frá 21. mars:

„Sveitarstjórn fagnar nýgerðum kjarasamningum og samþykkir tillögu Sambands íslenskra sveitarfélaga um lækkun gjaldskráa sem varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu.
Eftirtaldar gjaldskrár verða lækkaðar: Gjaldskrá leikskóla Þingeyjarsveitar, tónlistarskóla, heimaþjónustu og hádegisverður eldri borgara.
Rétt er að geta þess að í Þingeyjarsveit eru skólamáltíðir í leik- og grunnskóla gjaldfrjálsar og verða það áfram.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra áðurnefndar gjaldskrár í samræmi við tillögu Sambands íslenskra sveitarfélaga og taka nýjar gjaldskrár gildi þann 1. apríl nk.“

Þessir flokkar hafa nú verið lækkaðir svo hækkunin nemur 3.5% frá fyrra ári, ekki 7.5%.