Gengið frá ráðningu nýs sveitarstjóra

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur samið við Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur um að taka að sér starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar út kjörtímabilið. Sveitarstjórn býður nýjan sveitarstjóra velkominn og hlakkar til samstarfsins. 

Ragnheiður Jóna starfaði sem sveitarstjóri Húnaþings vestra frá 2019-2022. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri afmælisnefndar aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands.

Ragnheiður Jóna starfaði í 10 ár hjá Eyþingi, sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, sem menningarfulltrúi og verkefnastjóri uppbyggingarsjóðs.

Ragnheiður Jóna lauk MA-prófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og BA-prófi í nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess hefur hún stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og lokið námslínunni Forysta til framþróunar - leið stjórnenda til aukins árangurs, við Endurmenntun Háskóla Íslands.

Ragnheiður Jóna hlakkar til að takast á við krefjandi verkefni í nýju sveitarfélagi. „Kynnast íbúum og vinna með þeim að uppbyggingu nýs sveitarfélags sem hefur fjölmörg tækifæri til vaxtar.“

Ráðning Ragnheiðar Jónu verður staðfest á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar 23. febrúar nk. og hefur hún störf 1. mars.