Fara í efni

Gæti þín heilsutengda þjónusta hentað í Kjarna?

Verið er að útbúa mismunandi rými í húsnæði Kjarna, en Læknamóttakan mun flytja í húsið í maí og nú þegar er snyrtistofa tekin til starfa. Sameiginleg biðstofa og kaffistofa er í húsinu. Laus til leigu eru fjögur rými;

Um er að ræða:

  1. 23,3 fm rými sem hentar vel fyrir sjúkraþjálfun, nudd eða svipaða þjónustu.
  2. 12,3 fm rými sem er innréttað fyrir hárgreiðslustofu. Skolvaskur, stóll og spegill verða á staðnum.
  3. 8,8 fm rými sem getur hentað fyrir hvaða heilsutengdu þjónustu sem er 
  4. 9 fm rými sem getur hentað fyrir hvaða heilsutengdu þjónustu sem er 

-

Hafðu samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar, thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is eða í síma 512-1800 til þess að fá frekari upplýsingar. 

Kjarni á Laugum. Um er að ræða norðurenda hússins.

Getum við bætt efni þessarar síðu?