Fyrstu aðgerðir sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar vegna og COVID-19

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hélt sinn fyrsta sveitarstjórnarfund í fjarfundi (Teams) í gær, 26. mars en Alþingi hefur samþykkt breytingar á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi, tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar og geti haldið fjarfundi. Breytingarnar kveða á um að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku.

Á fundinum lagði sveitarstjórn fram fyrstu áætlun aðgerða vegna útbreiðsla COVID-19 veirunnar sem getur haft mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf og heimili, með fyrirsjáanlegu tekjutapi á næstu mánuðum. Sveitarstjórn vill koma á móts við þá sem þess óska, með eftirfarandi aðgerðum til þess að veita viðspyrnu:

1. Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á gjalddögum í samþykktri gjaldskrá fasteignagjalda árið 2020. Mögulegt er að óska eftir því að gjalddagar sem áttu að vera 1. apríl, 1. maí og 1. júní 2020, frestist um allt að 7 mánuði, enda verði óskað eftir því með tölvupósti á sérstöku eyðublaði á sigrun@thingeyjarsveit.is

2. Þar sem COVID-19 hefur valdið röskun á þjónustu stofnana sveitarfélagsins, svo sem í grunn- leik- og tónlistardeildum, þá er sveitarstjóra falið að endurskoða innheimtu með tilliti til notkunar og/eða skerðingar þjónustunnar. Einstaklingar greiða einungis fyrir þá þjónustu sem þeir nýta.

3. Þar sem Íþróttamiðstöð Þingeyjarsveitar mun verða lokuð í óákveðinn tíma, þá er eðlilegt að tímalengd áskrifta að aðgangskortum sem nú er í gildi framlengist sem lokun nemur.

4. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og skrifstofustjóra heimild til fullnaðarafgreiðslu á ofangreindum málum.

Sveitarstjórn mun í framhaldinu skoða fleiri leiðir til þess að bregðast við ástandinu og felur sveitarstjóra, oddvita og skrifstofustjóra að útfæra nánari tillögur að frekari aðgerðaráætlun og fylgjast með aðgerðum ríkisstjórnar og annarra sveitarfélaga ásamt því að fylgja leiðbeiningum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Þá mun sveitarstjórn taka til umræðu og endurskoðunar fyrirhugaðar framkvæmdir sveitarfélagsins á næsta fundi sínum sem haldinn verður eftir viku, 2. apríl.