Fara í efni

Fyrsta húsið á nýrri fjölnýtingarlóð á Þeistareykjum tekið að rísa

Hluti lóðar milli skiljustöðvar og aflstöðvar Landsvirkjunar á Þeistareykjum er svokölluð fjölnýtingarlóð þar sem vonast er til að geta stutt við ýmis nýsköpunarfyrirtæki þegar fram líða stundir, segir í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar.

Fyrsta húsið verður 126 fermetra hús sem leigt verður til GeoSilica. Vonir standa til að starfsemi geti hafist sumarið 2026, en framkvæmdir við lóðina hófust í lok apríl.

Samið var við byggingarverktakann Rein um byggingu hússins. Vinnuvélar Eyþórs sjá um jarðvegsvinnu.

Í húsinu verður framleiðslusvæði og rannsóknarstofa til efnagreininga, ásamt skrifstofu og góðri gestamóttöku, þaðan sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna. Húsið tekur mið af byggingum í kring og fellur vel að þeim.

GeoSilica var fyrst fyrirtækja til að tryggja sér húsnæði á fjölnýtingarlóðinni. Þá var jafnframt samið við fyrirtækið um afhendingu auðlindastrauma á Þeistareykjum og samstarf til næstu ára.

Sagt er frá á heimasíðu Landsvirkjunar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?