Fara í efni

Fyrsta hinsegin hátíðin á Norðurlandi eystra

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í fyrsta skiptið dagana 18.–22. júní 2025. Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni og stefnt er að því að viðburðir fari fram sem víðast í öllum landshlutanum. Einstaklingar, félög og fyrirtæki eru hvött til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og allra helst standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina.


Hvernig getur þú tekið þátt í hátíðinni?
• Haldið viðburð – t.d. tónlistaratriði, fræðsluviðburð eða skapandi uppákomu
• Boðið upp á sérstaka afslætti eða tilboð í tengslum við hátíðina
• Skreytt og lýst upp rýmið ykkar í litum hátíðarinnar
• Stutt við hátíðina með styrkjum eða samstarfi
• Flaggað fána hinseginleikans


Þau sem hafa áhuga á að leggja fram hugmynd eða halda viðburð mega endilega hafa samband við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra hátíðarinnar á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.


Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023. Heimasíða hátíðarinnar er www.hinseginhatid.is en þar eru allar helstu upplýsingar að finna og munu viðburðir hátíðarinnar birtast þar þegar nær dregur hátíðinni. Hátíðin er einnig á samfélagsmiðlum og þar verður hægt fylgjast með undirbúningi hátíðarinnar og finna yfirlit yfir viðburði. Við hvetjum alla til að fylgja hátíðinni þar.

Facebook síða Hinsegin hátíðar - facebook.com/hinseginhatid
Instagram síða Hinsegin hátíðar - https://www.instagram.com/hinseginhatid/


Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr UppbyggingarsjóðiSóknaráætlunar Norðurlands eystra.

Getum við bætt efni þessarar síðu?