Fara í efni

Fyrirkomulag rjúpnaveiða á Þeistareykjum verður óbreytt

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur samþykkt að fyrirkomulag rjúpnaveiða á Þeistareykjum verði með sama hætti og undanfarin ár. Áfram verður heimilt að stunda skipulagða rjúpnaveiði á svæðinu á leyfilegum veiðidögum hafi veiðimenn aflað sér tilskilinna leyfa.

Markmiðið með fyrirkomulaginu er að tryggja gott skipulag í kringum veiðarnar og stuðla að ábyrgri nýtingu hlunninda á svæðinu.

Veiðileyfi og nánari upplýsingar

Veiðileyfi á Þeistareykjum eru seld gegn gjaldi á vefsíðunni hlunnindi.is. Rjúpnaveiði á svæðinu er því óheimil án leyfis.

Gunnar Óli Hákonarson á Sandi er tengiliður Þingeyjarsveitar við veiðimenn og er í síma 864-7747.

Sama fyrirkomulag gildir einnig um rjúpnaveiði á Hrappsstöðum í Bárðardal. Nánari upplýsingar um veiðileyfi og fyrirkomulag veiðanna þar má finna á hlunnindi.is.

Getum við bætt efni þessarar síðu?