Frístundastyrkur 2021

Minnum foreldra og forráðamenn ungmenna frá 1. bekk grunnskóla til 18 ára aldurs að hægt er að sækja um frístundastyrk til sveitarfélagsins, að upphæð 15.000 kr. á barn. Markmiðið er að styðja við og hvetja til þátttöku barna í skipulögðu tómstundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér á heimasíðu sveitarfélagsins og á skrifstofunni í Kjarna.