Frístundastyrkur 2018

Minnum foreldra og forráðamenn ungmenna frá 1. bekk grunnskóla til 18 ára aldurs  að hægt er að sækja um frístundastyrk til sveitarfélagsins,  að upphæð 10.000 kr. á barn. Markmiðið er að styðja við og hvetja til þátttöku barna í skipulögðu tómstundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.  Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér á heimasíðu sveitarfélagsins og á skrifstofunni í Kjarna.