Fara í efni

Fréttir af framkvæmdum og uppbyggingu í sveitarfélaginu

Undanfarið hefur verið unnið að fjölbreyttum framkvæmdum og verkefnum innan sveitarfélagsins sem miða að því að bæta aðstöðu og umhverfi fyrir íbúa og þjónustu, en sagt var frá í mánaðarlegu fréttabréfi Þingeyjarsveitar.

Ný leiktæki og Tjarnarskjól á áætlun

Hönnun á grunnskólalóðum skólanna er nú í vinnslu og er markmiðið að skapa betra og fjölbreyttara útivistarsvæði fyrir nemendur. Ný leiktæki hafa þegar verið keypt og verða þau sett upp í sumar.

Framkvæmdir við Tjarnarskjól, leikskólann á Stórutjörnum, ganga vel og eru samkvæmt áætlun. Verkefnið heldur áfram með góðum hraða og stefnt er að áframhaldandi góðri framvindu á næstu mánuðum.

Endurnýjun á þaki á Ýdölum gekk vel og framkvæmdin fór hratt og örugglega fram. Verkið hefur bætt húsnæðið til framtíðar og komið í veg fyrir frekari skemmdir vegna leka.

Einnig hafa verið gerðar allsherjar endurbætur á annarri parhúsaíbúðinni í Þingeyjarskóla. Samhliða því hafa nýir gluggar verið settir í allt húsið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?