Framboð til sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Frestur til að skila framboðslistum er til 10. apríl 2026, kl. 12:00 á hádegi.
Framboðum, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, skal skila á skrifstofu Þingeyjarsveitar fyrir þann tíma eða til yfirkjörstjórnar Þingeyjarsveitar, sem tekur á móti framboðum í Þingey - stjórnsýsluhúsi föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00-12:00.
Framboðslistar skulu skipaðir 7 - 14 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 20-40 meðmælenda. Frambjóðendur og meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Þingeyjarsveit og hver meðmælandi getur einungis mælt með einu framboði. Mælst er til þess að framboð nýti rafrænt meðmælendakerfi á island.is fyrir söfnun meðmæla.
Nánari upplýsingar má finna á vef Landskjörstjórnar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.
Nánari upplýsingar um framkvæmd og framboð má finna í kosningalögum nr. 112/2021 og á upplýsingavefnum www.kosning.is
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnýslusviðs í síma 512-1800 og formaður yfirkjörstjórnar Þingeyjarsveitar í síma 895-3386 veita allar frekari upplýsingar og leiðbeiningar vegna undirbúnings framboðslista og framkvæmd kosninganna í Þingeyjarsveit.
Yfirkjörstjórn Þingeyjarsveitar
- Dagný Pétursdóttir, formaður
- Bjarni Höskuldsson
- Jóhanna Njálsdóttir