Frábær árangur nemenda og kennara
Þingeyjarsveit er afar stolt af því öfluga starfi sem unnið er í skólum sveitarfélagsins og ekki síst þegar árangurinn skilar sér í auknu sjálfstæði, sjálfstrausti og dýrmætri reynslu nemenda.
Í nýlegri umfjöllun Erasmus+ er sagt frá verkefni þar sem nemendur Reykjahlíðarskóla fengu tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir og víkka sjóndeildarhringinn. Þar kemur sérstaklega fram hversu mikið nemendurnir uxu í sjálfstæði og sjálfstrausti; „Reykjahlíðarskóli hlaut titilinn eTwinning verkefni ársins 2026 fyrir verkefnið Climate Justice for Change. Með valinu er verkefnið viðurkennt sem framúrskarandi dæmi um alþjóðlegt skólasamstarf og eitt besta eTwinning-verkefni ársins á Íslandi. Verkefnið hlaut einnig innlenda gæðaviðurkenningu eTwinning (National Quality Label) og vakti athygli fyrir öfluga þátttöku nemenda, skapandi verkefnavinnu og árangursríkt samstarf skóla í fjórum löndum.“
Á bak við verkefni sem þetta liggur afskaplega mikil vinna. Þingeyjarsveit vill senda Bylgju Dögg Sigurbjörnsdóttur kennara og verkefnastjóra, frábærum nemendum hennar og Reykjahlíðarskóla innilegar hamingjuóskir með árangurinn. Það er ómetanlegt að hafa kennara sem skapa nemendum tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann, upplifa nýja hluti og vaxa með hverri áskorun.
Við hvetjum alla til að lesa nánar um verkefnið og reynslu nemendanna í skemmtilegri umfjöllun Erasmus+:
👉 „Það sem stendur helst upp úr er hvað nemendurnir uxu í sjálfstæði og sjálfstrausti“ | Erasmus+