Frá Félagsþjónustu Norðurþings

Barnavernd Þingeyinga óskar eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn.

Hlutverk stuðningsfjölskyldu:

Stuðningsfjölskylda tekur á móti barni, eða í sumum tilvikum barni og foreldrum. Markmiðið er að létta álagi af barni og fjölskyldu, styrkja stuðningsnet barnsins og annað eftir því sem við á hverju sinni.

Algengast er að barn dvelji hjá stuðningsfjölskyldu 1-2 helgar í mánuði en heimilt er að vista barn hjá stuðningsfjölskyldu í allt að sjö daga samfellt.

Þjónustusvæði Barnaverndar Þingeyinga er Norðurþing, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur, Langanesbyggð og Svalbarðshreppur.

Starfsmenn Barnaverndar Þingeyinga eru:

Sigríður Valdimarsdóttir sigridur@nordurthing.is og Árný Yrsa Gissurardóttir arny@nordurthing.is

Þær veita frekari upplýsingar og taka á móti umsóknum vegna leyfa frá Barnavernd Þingeyinga.

Barnavernd Þingeyinga er staðsett að Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík