Fleiri jarðgerðarvélar komnar í hús
05.11.2026
Fleiri jarðgerðarvélar eru nú komnar til Þingeyjarsveitar og geta íbúar pantað vélar í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins.
Reynslan af vélunum hefur verið mjög góð og viðtökurnar hreint frábærar. Vélarnar vinna lífrænan heimilisúrgang á aðeins um átta klukkustundum og úr verður þurrt efni sem meðal annars má nýta áfram við ræktun.
Þingeyjarsveit býður íbúum jarðgerðarvélarnar á 50% afslætti.
Umsókn um að fá jarðgerðarvél er að finna undir Umsóknir - Umhverfismál í Þjónustugátt Þingeyjarsveitar. Afhending fer svo fram eftir samkomulagi.
Ekki bíða of lengi, vélarnar eru komnar, pantaðu núna!
Íbúum er bent á að hafa samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar ef spurningar vakna, eða senda tölvupóst á Daða: dadi@thingeyjarsveit.is