Færslugámar/flökkugámar

Líkt og síðasta sumar verður boðið uppá færslugáma/flökkugáma. Gámarnir eru ætlaðir fyrir járn og timbur og verða þeir sjö daga í senn á hverjum stað. Gámarnir verða staðsettir fyrst um sinn á eftirtöldum stöðum:

Við Laxárvirkjun 7. -14. maí

Við Árteig 7. - 14. maí

Íbúar eru hvattir til að huga að góðri nýtingu á gámunum með því að rúmmálsminka allan úrgang og raða í gámana eins og kostur er.

Aðrar staðsetningar auglýstar síðar.