Færslugámar/flökkugámar

Eins og rætt var um á íbúafundum fyrr í vetur verður boðið uppá færslugáma/flökkugáma undir járn og timbur á tilteknum svæðum í takmarkaðan tíma í sumar.

Gámarnir verða staðsettir á eftirtöldum stöðum, fimm daga í senn:
Laxárvirkjun – 19.-23. júní
Laugar – 26.-30. júní
Norðan við Nípá – 3.-7. júlí
Kiðagil – 10.-14. júlí

Íbúar eru hvattir til að huga að góðri nýtingu á gámunum með því að  rúmmálsminka allan úrgang og raða í gámana eins og kostur er.