Ertu með hugmynd að ferðaþjónustu?
10.03.2026
Tækifæri í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit eru fjölmörg, viltu ræða einhver?
Við viljum styðja við nýsköpun og þróun hugmynda, þess vegna er þér boðið til bollalegginga og skrafs í Gíg með ráðgjöfum SSNE.
Ráðgjafardagur SSNE, Mývatnsstofu og Þingeyjarsveitar verður haldinn í Gíg fimmtudaginn 12. mars
- Við hvetjum þig til að bóka tíma og viðra þína hugmynd.
- Þér er velkomið að bóka tíma þó hugmyndin hafi fæðst í gær, það er gott að byrja strax að ræða málin.
- Þau sem eru búin að taka fyrstu skrefin með hugmyndir og jafnvel byrjuð á verkefni eru sannarlega velkomin líka.
- Aðilar með hugmyndir hjá starfandi fyrirtækjum eru sérstaklega hvattir til að bóka tíma.
- Arnheiður Rán Almarsdóttir og Hildur Halldórsdóttir ráðgjafar hjá SSNE gefa góð ráð varðandi þína hugmynd, t.d. styrkjamöguleika, næstu skref, tengslanet og fleira.
Ráðgjafartíminn er frír en það þarf að bóka tímann, sem hægt er að gera á tvennan hátt:
- Senda línu á info@visitmyvatn.is
- Bóka rafrænt hér
Ráðgjafardagurinn er haldinn í kjölfar vinnu við skýrsluna sem var gefin út í samstarfi Markaðsstofu Norðurlands og Mývatnsstofu, um aðgerðaráætlun og framtíðarsýn ferðaþjónustu á svæðinu. Einn liður í áætluninni er að styðja við nýsköpun og ferskar hugmyndir.
