Mývetningur afhendir börnum í leik- og grunnskóla skíði til afnota

Mývetningur afhendir skólabörnum gönguskíði til afnota
Mývetningur afhendir skólabörnum gönguskíði til afnota

Á þorrablóti í Reykjahlíðarskóla, fimmtudaginn 2. febrúar s.l. afhenti Íþrótta- og ungmennafélagið Mývetningur, Reykjahlíðarskóla og leikskólanum Yl 20 pör af gönguskíðum, skóm og göngustöfum af gerðinni Madshus frá GG Sport. Jarðböðin veittu styrk til kaupa á skíðunum sem verða börnunum til afnota á skólatíma. Hér má lesa frétt sem birtist á vef Reykjahlíðarskóla.

Þó að Mývetningar hafi ekki farið mikinn á gönguskíðum allra síðustu ár má þó nefna skíðagöngugarpinn Þórodd Þóroddson, kenndan við Grænavatn, sem er einn a stofnendum skíðagöngufélagsins Ullar og hefur keppt víða bæði heima og erlendis. 

Ekki er komist hjá því að nefna Mývetningana þrjá sem kepptu á Vetrarólympíuleikunum í Noregi 1952, þeir Ívar Stefánsson frá Haganesi, Jón Kristjánsson frá Arnarvatni og Matthías Kristjánsson frá Litlu-Strönd. Ívar náði 29. sæti sem er besti árangur sem Íslendingur hefur náð á Vetrarólympuleikum. Hér má lesa um ferð íslendinganna í Lesbók Morgunblaðsins frá 1952.

Fyrir áhugasama þá hefur Hallgrímur Leifsson birt upplýsingar um gönguskíðaspor í Vogahrauni og Yngvi Ragnar upplýsingar um gönguskíðaspor frá Skútustöðum á facebook síðunni Mývatnssveitin. Sighvatur birtir svo upplýsingar um gönguskíðaspor á Laugum á facebook síðunni Spori Spaðason og Ungmennafélagið Bjarmi í samstarfi við Skógræktina auglýsir svo gönguskíðaspor í Vaglaskógi á facebook síðunni Skíðagöngubrautir í Vaglaskógi.

Allir út á skíði!