Eignarmörk jarða til umsagnar
HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Jarðirnar ná samanlagt yfir um 20.000 ferkílómetra og með þeim hækkar hlutfall afmarkaðs lands í landeignaskrá yfir 80% af flatarmáli Íslands . Drögin verða birt 22. október og þá fá landeigendur sex vikur til að skoða áætlunina og koma athugasemdum eða frekari upplýsingum á framfæri.
Alls fá um 2.550 landeigendur bréf í pósthólf sitt á Ísland.is. Flestir þeirra eða um 2.200 eru einstaklingar en í hópnum eru einnig 184 fyrirtæki og stofnanir. Einnig 166 dánarbú. Í bréfinu verður vísað á vefsjá landeignaskrár þar sem hver og einn getur skoðað drögin sem varða viðkomandi jörð. Mikilvægt er að landeigendur kynni sér gögnin, hvort sem þeir telja áætlunina rétta eða vilja benda á annað. Þekking landeigenda á staðháttum, eldri merkjum og fyrirliggjandi gögnum getur skipt miklu við lokavinnslu áætlunarinnar.
Nú er boltinn hjá landeigendum
Frá birtingu draganna, 22. október, er athugasemdafresturinn sex vikur. Á þeim tíma geta landeigendur sent HMS ábendingar, leiðréttingar og gögn sem varpa frekara ljósi á legu eignamarka. Verkefnið snýst um að áætla eignamörk á loftmyndum út frá þeim heimildum og upplýsingum sem eru tiltækar, svo sem landamerkjaskjölum, þinglýstum gögnum, kortum, örnefnalýsingum og staðháttum. Ekki gerð krafa um að landeigendur mæli upp mörkin eða láti gera merkjalýsingu innan frestsins, því áætluð eignamörk breyta hvorki eignarrétti né þinglýstum réttindum. Tilgangur verkefnisins er að draga fram bestu fáanlegu mynd af legu eignamarka og sýna jafnframt hvar óvissa eða ágreiningur er fyrir hendi. Þegar sex vikna frestinum lýkur fer HMS yfir allar innsendar athugasemdir, metur gögnin og hefur eftir atvikum samband við landeigendur til að fá frekari skýringar. Stefnt er að því að birta niðurstöður áætlunarinnar um eða eftir áramót.
Nánari upplýsingar má finna á vef Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, hér.