Deiliskipulag þéttbýliskjarna í Aðaldal

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 4. október 2018 að auglýsa skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að uppfærðu eldra deiliskipulagi af þéttbýliskjarna í Aðaldal.

Um er að ræða fjórar lóðir fyrir parhús og ellefu lóðir fyrir einbýlishús við Víðigerði og þrjár iðnaðar- og athafnalóðir við Iðjugerði.

Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá og með föstudeginum 12. október 2018 með athugasemdarfresti til og með föstudeginum 23. nóvember 2018.  Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar: https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/skipulagsmal/deiliskipulag/tillogur-i-auglysinguÞeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.  Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 23. nóvember 2018.  Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið:  bjarni@thingeyjarsveit.is.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Þingeyjarsveitar,

Bjarni Reykjalín.