Fara í efni

Brunavarnaáætlun 2026-2031

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafa samþykkt nýja Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Þingeyjarsveitar. Nýja brunavarnaáætlunin gildir til september 2031.
Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við lögbundin verkefni og þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu.
Einn mikilvægasti þáttur brunavarnaáætlunar er að gera sér grein fyrir hvar úrbóta er þörf og gera grein fyrir því í framkvæmdaáætlun.
Brunavarnaáætlunin er unnin af slökkviliðsstjóra og samþykkt af HMS og sveitarstjórn.
 
Áætlunina má lesa hér.
Getum við bætt efni þessarar síðu?