Breytingar hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps

Um áramót lætur Bjarni Reykjalín af störfum sem skipulags- og byggingarfulltrúi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Hann mun hins vegar starfa áfram til næsta vors í sérverkefnum, m.a. í endurskoðun aðalskipulags beggja sveitarfélaga.

Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur stefna að því að halda áfram samstarfi sínu í skipulags- og byggingarmálum.  Frá og með áramótum mun Helga Sveinbjörnsdóttir gegna starfi byggingarfulltrúa í Þingeyjarsveit og Guðjón Vésteinsson er starfandi skipulagsfulltrúi í Skútustaðahreppi. Guðjón og Helga munu í samstarfi vinna fyrir bæði sveitarfélögin samkvæmt samstarfssamningi milli sveitarfélaganna. Næsta haust mun þetta fyrirkomulag svo verða endurskoðað.

 

Frá 1. janúar 2019 verður fyrirkomulagið með eftirfarandi hætti:

Erindi til Þingeyjarsveitar vegna skipulags- og byggingarmála skal senda á helga@thingeyjarsveit.is

Erindi til Skútustaðahrepps vegna skipulags- og byggingarmála skal senda á gudjon@skutustadahreppur.is

 

Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur