Breytingar á reglugerð um takmörkun á sóttvörnum

Í gær 13. janúar urðu breytingar á reglugerð um takmörkun á sóttvörnum sjá hér:

https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=25abf8e8-aac0-4afb-bfa6-2a25b00db086

Ný reglugerð gildir til og með 17. febrúar 2021.

Þá er einnig rétt að nefna að núgildandi reglugerð fyrir skólastarf gildir frá 1. janúar sl. til 28. febrúar 2021 sjá hér:

https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=72703eb0-47b7-4de1-8723-5ef869658e81

Takmarkanir í gildi

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Verslanir: Reglur verða óbreyttar frá því sem nú er.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ítarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.
  • Útfarir: Í útförum verður heimilt að hafa 100 manns viðstadda og teljast börn fædd árið 2005 eða síðar ekki með í þeim fjölda. Skylt verður að bera grímur. Fjöldi gesta í erfidrykkjum verður 20 manns í samræmi við almennar fjöldatakmarkanir (uppfært 11. janúar 2021).