Breyting á meðhöndlun lífræns úrgangs í Þingeyjarsveit
Á tímum aukinnar vitundar um umhverfismál og í ljósi nýrrar lagasetningar þar sem ekki er lengur heimilt að setja lífrænan úrgang með almennu sorpi, stígur sveitarfélagið nú fyrsta skrefið í innleiðingu nýs fyrirkomulags í meðhöndlun lífræns úrgangs.
Jarðgerðarvélar með 50% niðurgreiðslu
Sveitarfélagið býður upp á jarðgerðarvélar og niðurgreiðir 50% af kostnaði fyrir þau heimili sem vilja nýta sér þessa lausn. Jarðgerðarvélar eru hugsaðar fyrir matarafganga aðra en stór bein og stóra ávaxtasteina.
- Skráning og upplýsingar: Sótt er um í þjónustugátt Þingeyjarsveitar
Jarðgerðarvélin FoodCycler vinnur duftkennt efni úr lífræna úrganginum úr eldhúsinu, sem hægt er að nýta í garðinn, til dæmis. Hér má skoða frekari upplýsingar um vélina. Íbúum býðst að eignast vélina á 50% afslætti.
Vélarnar verða afhentar á eftirfarandi stöðum:
- Gámasvæði á Stórutjörnum. Miðvikudaginn 11. mars. 16:00-18:30.
- Áhaldahúsinu á Laugum. Þriðjudaginn 10. mars. 13:00-16:00.
- Áhaldahúsinu í Reykjahlíð. Þriðjudaginn 10. mars. 13:00-16:30.
Reikningur frá sveitarfélaginu, að upphæð um 35.500 kr., verður sendur í kjölfarið.
Lífrænn úrgangur verður enn sóttur í óbreyttri mynd á hvert heimili í sveitarfélaginu þangað til nýtt sorphirðufyrirkomulag kemst í gang. Nýtt fyrirkomulag miðar að því að halda kostnaði í skefjum og draga úr umhverfisáhrifum. Sorphirðuhringurinn í sveitarfélaginu er um 1.400 km, en sérstök heimtaka á lífrænu sorpi myndi valda miklum viðbótarkostnaði og auka kolefnisspor verulega.
Einnig er unnið að útboði á sorphirðu þar sem búast má við frekar breytingum. Nánari upplýsingar um þá framkvæmd verða kynntar síðar.
Löglegir möguleikar íbúa til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi að loknu útboði:
- Moltugerðarvélar til heimilisnota;
- Moltutunnur
- Bokashi-aðferð
- Haughús (ef aðgangur er fyrir hendi)
- Að fara með lífrænan úrgang á næsta gámasvæði
Íbúum er bent á að hafa samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar ef spurningar vakna, eða senda tölvupóst á Daða Lange, umhverfisfulltrúa: dadi@thingeyjarsveit.is