Bókavörður við Bókasafn Reykdæla - laust til umsóknar

Starf bókavarðar við Bókasafn Reykdæla er laust til umsóknar.  Um er að ræða 22% stöðugildi, viðvera tvisvar í viku, mánudags- og fimmtudagskvöld, ásamt því að sinna innkaupum o.fl. fyrir safnið. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun ágúst n.k. og hafi reynslu og þekkingu bókavarðar.

Umsókn „Bókavörður“ skal senda á Þingeyjarsveit Kjarna, 650 Laugar eða á netfangið dagbjort@thingeyjarsveit.is Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k. 

Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 464 3322.

Sveitarstjóri