Bakvarðasveit Þingeyjarsveitar

Áttu lausa stund? Jafnvel dag og dag?
Tilbúin að drýgja aðeins tekjurnar?
Ertu til í að láta gott af þér leiða? Redda málum í stuttan tíma?

Okkur í Þingeyjarsveit vantar oft gott fólk í smávægileg viðvik, stuttar afleysingar og tímabundin verkefni, stundum með stuttum fyrirvara.

Yfirleitt er um að ræða tímavinnu og verkefnin fjölbreytt; heimaþjónusta, liðveisla, þrif og fjölbreytt verkefni á vinnustöðum sveitarfélagsins.
Hentar öllum kynjum.

Nú leitum við að fólki sem er tilbúið að vera á skrá hjá okkur og hringja má í ef á þarf að halda.
Það er engin skuldbinding fólgin í því að vera í bakvarðasveitinni, en hér gætu skapast tækifæri til að prófa eitt og annað.

Ef þetta er eitthvað sem þú ert til í þá endilega skráðu þig hér í bakvarðasveitina.
Ef þú hefur einhverjar spurningar þá má senda línu á verkefnastjóra fjölskyldumála; asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is