Aukin þjónusta Bergsins á Norðurlandi eystra
Sveitarstjórar allra tíu sveitarfélaganna innan SSNE undirrituðu í vikunni samstarfssamning við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra. Undirritunin fór fram á Haustþingi SSNE á Dalvík. Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, segir ánægjulegt að sveitarfélögin á svæðinu hafi sameinast um að styðja við starfsemi Bergsins.
Katrín hvetur ungmenni í Þingeyjarsveit á aldrinum 12-25 ára sem finnst þau þurfa að tala um eitthvað sem þau hafa ekki svör við, að leita til Bergsins. Þar eru ráðgjafar til viðræðu og hlustunar á vandamál, stór og smá og til að vinna með ungmennum að bættri líðan.
Markmið samstarfsins er að tryggja ungu fólki greiðari aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi og stuðla að snemmtækri íhlutun. Bergið veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára einstaklingsmiðaða ráðgjöf, án skilyrða og endurgjalds, segir í frétt á vef SSNE.
Með samstarfinu sameinast sveitarfélögin um að efla og þróa þjónustu við ungt fólk á Norðurlandi eystra og tryggja samfellu, gæði og gott aðgengi til lengri tíma. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.
Bergið Headspace er lágþröskulda stuðnings- og ráðgjafarmiðstöð þar sem ungt fólk getur fengið aðstoð á eigin forsendum. Ungmenni og aðstandendur þeirra geta óskað eftir þjónustu í gegnum vef Bergsins, símleiðis eða með tölvupósti.
Áhugasamir um starfið er bent á að hafa samband við Bergið.