Auglýsing um starf leikskólakennara/grunnskólakennara

Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennara að leikskóladeildinni Barnaborg.

Um 100% starfshlutfall er að ræða

Þingeyjarskóli auglýsir eftir grunnskólakennara í 50% starf við grunnskóladeildina skólaárið 2017-2018 vegna forfalla. Um yngri barna kennslu er að ræða.

Við leitum að kennurum sem:

-          Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu

-          Hafa lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum

-          Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni

-          Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur.  Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.

Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans. Rík tónlistarhefð er við skólann.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.  Í Þingeyjarskóla er unnið með byrjendalæsi.

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Þingeyjarskóli er reyklaus vinnustaður.

Umsóknarfrestur er til 20.júlí 2017

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is