Auglýsing um Opið hús haustið 2017

Opið hús verður eins og áður alltaf á þriðjudögum:

Þingeyjarskóli            26.sept. 17.okt. 7.nóv. 28.nóv.

Seigla                          3.okt. 24.okt. 14.nóv. 5.des.

Stórutjarnaskóli        10.okt. 31.okt. 21.nóv. 12.des.

Í Reykjadal verður Opið hús áfram í Seiglu. Þægilegast er að keyra upp að skóla að austan og ganga þar inn.

Hádegismatur er í boði á öllum stöðum kl. 13:00 og kostar 750 kr.

Það er nauðsynlegt að láta vita fyrir hádegi daginn áður ef fólk vill fá hádegismat.

Þingeyjarskóli            sími 464-3583

Seigla                          sími 464-3166

Stórutjarnaskóli        sími 464-3222

Boccia hefst kl. 12:00 í Stórutjarnaskóla þegar Opið hús er þar.

Dagskrá hefst alls staðar kl. 13:45.

Það verður ýmislegt til skemmtunar s.s. söngur, hljóðfæraleikur, myndasýningar og  upplestur. Eins og áður verður spiluð  félagsvist í  Stórutjarnaskóla. Það er líka hægt að hittast og spjalla saman eða hafa  meðferðis handavinnu. Ef einhverjir vilja koma með  og  flytja  efni til skemmtunar og fróðleiks þá er það að sjálfsögðu vel þegið.

Opið hús er á vegum Þingeyjarsveitar og fólk þarf ekki að vera í Félagi eldri borgara til þess að taka þátt.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Umsjónarfólk :      

Anita Þórarinsdóttir                         sími 464-3286 og 894-3286

Ólína Arnkelsdóttir                          sími 464-3608 og 865-8882

Halla L. Loftsdóttir                           sími 464-3562 og 867-6747