Auglýsing um kjörfund í Þingeyjarsveit vegna sveitarstjórnakosninga 26. maí 2018

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00. 

Kosið verður í einni kjördeild í Ljósvetningabúð.

Kosningarétt hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá.

Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa með sér skilríki.

Talning atkvæða hefst eins fljótt og kostur er eftir að kjörstaður lokar.

Allar nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar, s.s. kjörskrá, lög og leiðbeiningar er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is.

 

Kjörstjórn Þingeyjarsveitar
Bjarni Höskuldsson
Dagný Pétursdóttir
Helga A Erlingsdóttir